Stórt snjóflóð féll á Patreksfirði 26. mars
Fimmtudaginn 26. mars féll nokkuð stórt snjóflóð úr hlíðinni ofan Urðargötu á Patreksfirði og lenti af krafti á þvergarði ofan byggðarinnar.
Á heimasíðu Veðurstofunnar segir að flóðið hafi verið það stærsta sem hefur fallið á þessum stað síðan 1958. Þá virðist vera að garðurinn hafi komið í veg fyrir að flóðið félli á hús fyrir neðan garðinn þar sem flóðið 1958 olli talsverðu tjóni.
Á heimasíðu Veðurstofunnar segir um flóðið:
Flóðið féll í skammvinnu austan óveðri sem gekk yfir Vestfirði. Veðrið tók að versna um morguninn og fór meðalvindhraði í um 30 m/s á fjallinu Brellum ofan þorpsins á Patreksfirði laust fyrir hádegi. Eftir hádegi bætti í snjókomu og var komin stórhríð fljótlega eftir hádegi en þá var götunni milli Mýra og Urða ofan hafnarinnar á Vatneyri lokað. Nýir varnargarðar verja nú bæði þessi hverfi, Mýrar og Urðir, en svæðið á milli þeirra er þekktur snjóflóðafarvegur og með virkustu farvegum ofan byggðar á landinu. Rýming húsnæðis neðan Urða á Patreksfirði var nokkuð algeng áður fyrr og íbúar voru orðnir vanir ónæði sem þeim fylgir. Hlíðin þar getur safnað mjög hratt í sig snjó þegar vindur er hvass af austri eða norðaustri með snjókomu og skafrenningi.
Aðdragandi snjóflóða getur verið stuttur eins og kom í ljós þennan dag en um kl. 15:00 sáust vísbendingar um að flóð hefði fallið. Náði flóðið um 200 m inn eftir nýja þvergarðinum ofan við Urðir en heildarbreidd flóðsins var um 400 m. Flóðið flæddi niður meðfram leiðigarðinum við Urðir og um 30 m niður fyrir veginn sem hafði verið lokað.
Á þeim kafla sem snjóflóðið skall á þvergarðinum mátti sjá greinileg ummerki upp á garðhliðina á nokkrum stöðum þar sem flóðsnjór hafði þjappast inn í grjóthleðslu á brattri garðhliðinni. Flóðtungan sjálf var ekki þykk, víðast hvar nokkrir tugir sentimetra, og þykkust ofan við þvergarðinn þar sem finna mátti um 1-1,5 m þykka hrauka. Þegar hlýnaði nokkrum dögum eftir að flóðið féll kom í ljós að með flóðinu hafði borist talsvert af grjóti niður að varnargörðunum.
Veðurstofan birti einnig myndir sem voru teknar af Björgunarsveitinni Blakki annars vegar og Þresti Reynissyni hins vegar.


