Stuðningsaðili á Bíldudal
Fjölskyldusvið Vesturbyggðar leitast eftir því að ráða stuðningsaðila fyrir barn á Bíldudal. Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
Menntunar-og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla af starfi með fötluðum börnum kostur
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð nauðsynleg
- Stundvísi, snyrtimennska og reglusemi
Helstu verkefni
- Persónulegur stuðningur barns, aðlagaður að þörfum og áhugasviði hvers barns fyrir sig
- Um er að ræða tímavinnu í samráði við foreldra og barn
- Starfið er gefandi og skemmtilegt!
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2026
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Allir einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Theodóra Jóhannsdóttir, félagsráðgjafi fjölskyldusviðs í síma 450 2300 eða á theodora@vesturbyggd.is.
