Stuðningsfulltrúar –Patreksskóli
Viltu slást í hóp starfsmanna sem hafa starfsgleði, faglegan metnað og umhyggju fyrir velferð nemenda að leiðarljósi? Meðal áherslna Patreksskóla er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfinu.
Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur náms- og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við kennara eða sérkennara, eftir áætlun og leiðsögn þeirra. Fylgir einum eða fleiri nemendum í frímínútum og vettvangsferðum og aðstoðar þá eftir þörfum. Situr fundi með umsjónarkennurum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
- Reynsla af uppeldi og kennslustörfum í grunnskóla æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í störfum og faglegur metnaður
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslensku og tölvukunnátta
- Vilji til að bæta við þekkingu sína
- Stundvísi
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2025
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar veitir Jónína Helga Sigurðardóttir Berg, skólastjóri Patreksskóla. Umsóknir sendist á netfangið joninas@vesturbyggd.is. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.