Stuttmyndir Púkans sýndar í Skaldborg
Laugardaginn 2. maí kl. 17:00 verður fimmbíó í Skaldborgarbíói. Þar verða sýndar stuttmyndir sem nemendur á unglingastigi unnu á námskeiðum Púkans og UngRIFF fyrr í vetur.
Námskeiðin heppnuðust einstaklega vel og myndirnar eru hver annari skemmtilegri. Leiðbeinandinn, Erlingur Óttar Thoroddsen kvikmyndaleikstjóri, flytur ofurlítinn inngang og stýrir stuttum umræðum að sýningu myndanna lokinni. Verkefnið er styrkt af Erasmus+.