Styrkir til hleðsluinnviða við fjölbýlishús
Loftslags- og orkusjóður auglýsir styrki til húsfélaga vegna uppbyggingar hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum við fjölbýlishús. Markmiðið er að auðvelda uppbyggingu hleðsluaðstöðu og styðja við aukna rafvæðingu bílaflotans
Styrkhæf eru húsfélög fjöleignarhúsa með átta íbúðir eða fleiri, að uppfylltum skilyrðum sjóðsins. Styrkur getur numið allt að 5 milljónum króna á hvert verkefni, þó aldrei meira en 50 prósentum af heildarkostnaði. Meðal styrkhæfra framkvæmda eru lagnaleiðir að hleðsluinnviðum og breytingar á heimtaug fjölbýlishúss.
Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 þann 1. október 2026. Nánari upplýsingar um styrkina, skilyrði og umsóknarferli má finna á vef Loftslags- og orkusjóðs.