Hoppa yfir valmynd

Styrkir til menn­ingar- og ferða­mála

Bæjarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til menn­ingar- og ferða­mála. Athygli er vakin á nýjum úthlut­un­ar­reglum og er umsækj­endum bent á að kynna sér þær vel áður en sótt er um. Næsti umsókn­ar­frestur er til og með 1. apríl.


Skrifað: 19. febrúar 2026

Nýjar reglur voru samþykktar á 47. fundi bæjarráðs og hafa þegar tekið gildi. Þær leysa eldri reglur af hólmi og fela í sér skýrari matsviðmið og fyrirkomulag úthlutana. Markmiðið með breytingunum er að stuðla að faglegu mati og gagnsæi við styrkveitingar. Lögð er aukin áhersla á faglegan undirbúning, raunhæfar kostnaðaráætlanir og skýra lýsingu á framlagi verkefna til menningar- og ferðamála í sveitarfélaginu. Jafnframt er skýrt kveðið á um ábyrgð styrkþega á skilum lokaskýrslu og eftirfylgni með ráðstöfun styrkfjár, enda er hámarksfjárhæð á hvern styrk ekki lengur tilgreind.

Helstu breytingar á úthlutunarreglum eru eftirfarandi:

  • Úthlutunum fækkar úr fjórum í ári í tvær á ári.
  • Umsóknarfrestir breytast og eru nú til og með 1. apríl annars vegar og til og með 1. október hins vegar.
  • Bæjarráði er heimilt að úthluta allt að 80% af heildarfjármagni ársins í fyrri úthlutun en áður var fjármagni skipt jafnt á fjórar úthlutanir.
  • Hámarksfjárhæð á hvern styrk er ekki lengur tilgreind.
  • Matsþættir eru skýrari. Kveðið er sérstaklega á um tengsl verkefnisins við sveitarfélagið, faglegan undirbúning og raunhæfa kostnaðaráætlun.
  • Styrkþegar skulu skila lokaskýrslu innan tveggja mánaða frá lokum verkefnis. Skil lokaskýrslu eru skilyrði fyrir því að umsækjandi geti sótt um styrk á ný. Vesturbyggð áskilur sér heimild til að krefjast endurgreiðslu styrks – að fullu eða hluta – fari verkefni ekki fram eða berist lokaskýrsla ekki innan tilskilins frests.

Umsóknum skal skilað á rafrænu eyðublaði í íbúagátt. Í umsókn þarf meðal annars að gera grein fyrir lýsingu verkefnis, tengslum þess við sveitarfélagið, kostnaðaráætlun og öðrum styrkjum sem sótt hefur verið um.

Nánari upplýsingar veitir menningar- og ferðamálafulltrúi.

Menningar- og ferðamálafulltrúi

VMÞ

muggsstofa@vesturbyggd.is/+354 450 2335