Styrkur til að efla ímynd sameinaðs sveitarfélags
Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur hlotið styrk að upphæð 9,4 milljónir króna til verkefnisins Byggðabragur – sjálfsmynd íbúa og ímynd nýs sveitarfélags.
Skrifað: 13. mars 2025
Um verkefnið segir:
Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur sameinuðust árið 2024. Svæðið hefur átt undir högg að sækja í áratugi og umfjöllun oft reynst íbúum erfið. Verkefnið miðar að því að styrkja sjálfsmynd svæðisins og vinna með sveitarfélaginu og íbúum að því að skapa framtíðarsýn fyrir nýtt sveitarfélag og byggja á henni ímyndarsókn.
Vesturbyggð fagnar styrkveitingunni og væntir þess að verkefnið muni efla samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum.