Hoppa yfir valmynd

Styttist í heim­komu Baldurs

Breiða­fjarða­ferjan Baldur hefur verið í viðhaldi og endur­bótum í slipp í Hafnar­firði undan­farnar vikur. Stefnt er að því að ferjan haldi heim á leið í lok vikunnar.


Skrifað: 23. nóvember 2026

Baldur fór í prufusiglingar fyrir helgi þar sem nýr stjórnbúnaður skipsins var prófaður með góðum árangri.

Nú er unnið að lokafrágangi og þrifum um borð áður en ferjan heldur heim á leið. Nánari upplýsingar um heimkomuna verða birtar þegar þær liggja fyrir.