Sumarafleysing á Arakletti
Auglýst er eftir starfsmanni í sumarafleysingu við leikskólann Araklett á Patreksfirði. Um er að ræða 100% starf, en hlutastarf getur verið möguleiki.
Okkur vantar starfsmann í sumarafleysingu á leikskólann Araklett á Patreksfirði í sumar. Um er að ræða 100% stöðu sem leiðbeinandi út sumarið. Hægt er að semja um upphaf og lok ráðningartímabils.
Við leitumst við því að láta samsetningu starfsmannahópsins endurspegla samsetningu íbúa bæjarins og hvetjum við því fólk á öllum aldri, uppruna og af öllum kynjum til að sækja um.
Helsta ábyrgð er
- Að vinna að uppeldi, menntun og umönnun barnanna, samkvæmt aðalnámskrá leikskóla, stefnu sveitarfélags og skóla og skipulagi á deild.
- Hafa frumvkæði að því að virkja öll börn til að geta tekið þátt í leik.
- Sýna jákvæðni gagnvart fjölbreytileika og því að hver og einn á rétt á hluteild í leikskólasamfélaginu á eigin foresendum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góðir samvinnu- og samskiptahæfileikar.
- Jákvæðni, frumkvæði og sköpun í starfi.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er kostur.
- Góð íslenskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergdís Þrastardóttir, leikskólastjóri, netfang hennar er araklettur@vesturbyggd.is, og sími er 450 2342 eða 856 2343. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.