Sumarafleysing – Araklettur
Okkur vantar starfsmann í sumarafleysingu á leikskólann Araklett á Patreksfirði í sumar. Um er að ræða 100% stöðu sem leiðbeinandi út sumarið. Hægt er að semja um upphaf og lok ráðningartímabils.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi, menntun og umönnun barnanna, samkvæmt aðalnámskrá leikskóla, stefnu sveitarfélags og skóla og skipulagi á deild.
- Hafa frumvkæði að því að virkja öll börn til að geta tekið þátt í leik.
- Sýna jákvæðni gagnvart fjölbreytileika og því að hver og einn á rétt á hluteild í leikskólasamfélaginu á eigin foresendum
Helstu menntunar- og hæfniskröfur
- Góðir samvinnu- og samskiptahæfileikar.
- Jákvæðni, frumkvæði og sköpun í starfi.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum eð ungum börnum er kostur.
- Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2025
Á Arakletti leitumst við að láta samsetningu starfsmannahópsins endurspegla samsetningu íbúa bæjarins og hvetjum við því fólk á öllum aldri, uppruna og af öllum kynjum til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergdís Þrastardóttir, leikskólastjóri.