Hoppa yfir valmynd

Sumaraf­leysing við hafnir

Hafna­sjóður auglýsir eftir starfs­manni í sumaraf­leys­ingar fyrir hafn­ar­verði við hafnir Vest­ur­byggðar sumarið 2026. Um er að ræða afleys­ing­ar­störf á tíma­bilinu frá maí til loka ágúst 2026.


Skrifað: 17. mars 2026

Starfsmaður starfar við leiðsögn og öryggiseftirlit á höfn og sinnir verkefnum hafnarvarða, svo sem vigtun afla, samskiptum við opinberar stofnanir, móttöku og röðun skipa í höfn, afgreiðslu vatns og rafmagns til skipa og almennum störfum tengdum rekstri hafna. Starfsstöð er á Patreksfirði, en gera má ráð fyrir að starfsmaður þurfi einnig að sinna verkefnum á öðrum höfnum sveitarfélagsins.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Hæfniskröfur

  • Réttindi sem löggiltur vigtarmaður eða vilji til að sækja námskeið til að öðlast slík réttindi
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Góð tölvukunnátta
  • Skipulögð og vönduð vinnubrögð
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
  • Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026

Umsóknir skulu vera skriflegar og sendar til Vesturbyggðar á netfangið elfar@vesturbyggd.is, merktar: Umsókn – afleysing hafnarvörður.