Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Sumarstarf í Bröttuhlíð
Vesturbyggð auglýsir laust til umsóknar sumarstarf í íþróttamiðstöðinni Bröttuhlíð.
Um er að ræða 100% stöðu í vaktavinnu.
Einnig er leitað eftir afleysingu um kvöld og á helgum.
Helstu verkefni
- Öryggisgæsla og eftirlit
- Afgreiðsla
- Aðstoð við viðskiptavini
- Þrif
Menntun og hæfniskörfur
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Hafa gott val á íslensku og ensku
- Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2024
Laun og kjör fara eftir gildandi kjarasamningum.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli Már Einarsson forstöðumaður. Umsóknir skulu sendast á netfang forstöðumanns.