Hoppa yfir valmynd

Sumarstörf á Minja­safninu að Hnjóti

Minja­safn Egils Ólafs­sonar að Hnjóti auglýsir sumarstörf við safnið laust til umsóknar.


Skrifað: 20. febrúar 2026

Helstu verkefni starfsfólks felast meðal annars í leiðsögn um safnið, afgreiðslu í kaffiteríu og almennum þrifum.

Við leitum að jákvæðum, þjónustulunduðum, skipulögðum og snyrtilegum einstaklingum með hæfni í mannlegum samskiptum.

Gott vald á íslenskri og enskri tungu er æskilegt og frekari tungumálakunnátta er kostur.

Frítt húsnæði er í boði fyrir starfsfólk í 5 km. fjarlægð frá safninu. Eigið farartæki er kostur.

Frábært tækifæri fyrir áhugafólk um sögu, náttúru og menningu sunnanverðra Vestfjarða.

Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2026

Umsókn sendist á netfangið museum@hnjotur.is.

Frekari upplýsingar gefur forstöðumaður safnsins.

Forstöðumaður Minjasafns Egils Ólafssonar að Hnjóti

IHV

ingahlin@vesturbyggd.is/+354 456 1511