Sumarstörf - Flokkstjórar í vinnuskóla
Vestubyggð leitar að flokkstjórum við vinnuskóla á Bíldudal, í Tálknafirði og á Patreksfirði, sumarið 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra starfi hóps í vinnuskóla
- Vinna með ungmennum og leiðbeina þeim um rétt vinnubrögð
- Vera góð fyrirmynd og vinna að jákvæðum samskiptum
Hæfniskröfur
- Samskiptahæfni
- Jákvæðni
- Frumkvæði
- Samviskusemi
- Stundvísi
Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2026
Um er að ræða 100% sumarstarf sem hentar öllum kynjum. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir sviðsstjóri fjölskyldusviðs. Umsóknir sendist á vesturbyggd@vesturbyggd.is.