Sumarstörf — Flokkstjórar í vinnuskóla
Vestubyggð leitar að flokkstjórum við vinnuskóla á Bíldudal, í Tálknafirði og á Patreksfirði, sumarið 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra starfi hóps í vinnuskóla
- Vinna með ungmennum og leiðbeina þeim um rétt vinnubrögð
- Vera góð fyrirmynd og vinna að jákvæðum samskiptum
Hæfniskröfur
- Samskiptahæfni
- Jákvæðni
- Frumkvæði
- Samviskusemi
- Stundvísi
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2026
Um er að ræða 100% sumarstarf sem hentar öllum kynjum. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Umsóknir sendist á vesturbyggd@vesturbyggd.is.