Hoppa yfir valmynd

Svæð­is­skipulag Vest­fjarða 2026-2050

Svæð­is­skipu­lags­nefnd Vest­fjarða samþykkti fyrir hönd allra sveit­ar­fé­laga á Vest­fjörðum, þann 26. maí 2025 vinnslu­til­lögu Svæð­is­skipu­lags Vest­fjarða 2026-2050. Vinnslu­til­lagan er nú til kynn­ingar og umsagnar.


Skrifað: 20. júní 2025

Vinnslutillagan byggir á lýsingu svæðisskipulagsins sem kynnt var á samráðsfundum með ibúum á Vestfjörðum vorið 2024. Á grundvelli samráðsins vann svæðisskipulagsnefnd í samvinnu við sveitarfélögin, frumdrög svæðisskipulagsins og birtu þau undir lok sama árs. Í frumdrögum er kynnt sú framtíðarmynd að íbúum á Vestfjörðum fjölgi og verði að lágmarki 11.000 manns árið 2050.

Í vinnslutillögu svæðisskipulagsins er sett fram framtíðarsýn og sameiginleg stefna sveitarfélaga á Vestfjörðum til ársins 2050, með tillögu að leiðarljósum og markmiðum á fimm málefnasviðum; náttúru og auðlindir, grunnkerfi, samfélagsauð, atvinnu og nýsköpun og menningarauð.  Óskað er umsagnar um þessar tillögur og annað efni vinnslutillögunar, til að móta endanlega svæðisskipulagstillögu sem áætlað er að verði sett fram í upphafi árs 2026.

Með vinnslutillögunni fylgja einnig drög að stöðumati tilögunnar þar sem tilgreind eru helstu forsendur skipulagstillögunnar.

Tillagan verður opin til umsagnar í Skipulagsgátt frá 6. júní til og með 20. ágúst 2025.

 

Nánari upplýsingar um birtingu tillögunnar má einnig finna á heimasíðu Vestfjarðastofu.