Hoppa yfir valmynd

Svæð­is­skipulag Vest­fjarða kynnt

Kynn­ing­ar­til­laga að Svæð­is­skipu­lagi Vest­fjarða 2025–2050 hefur verið birt í Skipu­lags­gátt og er opið fyrir umsagnir til 7. apríl 2026. Opinn fundur um tillöguna fer fram 26. febrúar 2026 kl. 17:00 í Félags­heimili Patreks­fjarðar.


Skrifað: 16. febrúar 2026

,

Kynningartillaga að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025–2050 liggur nú fyrir í Skipulagsgátt ásamt umhverfisskýrslu og fylgiriti. Kynningartíminn stendur frá 16. febrúar 2026 og geta íbúar og aðrir áhugasamir komið á framfæri umsögnum í Skipulagsgáttinni á kynningartímanum.

Um er að ræða fyrsta svæðisskipulagið sem tekur til Vestfjarða í heild og markar sameiginlega stefnu sveitarfélaga á svæðinu til ársins 2050. Nánari upplýsingar um efni tillögunnar, forsendur hennar og umhverfismat er að finna í Skipulagsgátt.

Opinn fundur um kynningartillöguna verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar 2026 kl. 17:00 í félagsheimili Patreksfjarðar að Aðalstræti 107. Þar gefst íbúum kostur á að kynna sér efni hennar nánar.