Svæðisskipulag Vestfjarða kynnt
Kynningartillaga að Svæðisskipulagi Vestfjarða 2025–2050 liggur nú fyrir í Skipulagsgátt ásamt umhverfisskýrslu og fylgiriti. Opinn fundur um kynningartillöguna verður haldinn þriðjudaginn 10. mars 2026 kl. 17:00 í félagsheimili Patreksfjarðar að Aðalstræti 107. Þar gefst íbúum kostur á að kynna sér efni hennar nánar.
Kynningartíminn stendur frá 16. febrúar 2026 og geta íbúar og aðrir áhugasamir komið á framfæri umsögnum í Skipulagsgáttinni á kynningartímanum. Opið er fyrir umsagnir til 7. apríl 2026.
Um er að ræða fyrsta svæðisskipulagið sem tekur til Vestfjarða í heild og markar sameiginlega stefnu sveitarfélaga á svæðinu til ársins 2050. Nánari upplýsingar um efni tillögunnar, forsendur hennar og umhverfismat er að finna í Skipulagsgátt.