Hoppa yfir valmynd

Sveit­ar­fé­lagið hlýtur viður­kenn­ingu

Vest­ur­byggð er meðal 163 fyrir­tækja, sveit­ar­fé­laga og stofnana sem hlutu viður­kenn­ingu Jafn­væg­is­vog­ar­innar fyrir kynja­jafn­vægi í fram­kvæmda­stjórnum. Viður­kenn­ingin er veitt þeim sem hafa náð því mark­miði að hlut­fall hvors kyns í fram­kvæmda­stjórn sé að minnsta kosti 40%.


Skrifað: 29. október 2026

Jafnvægisvogin veitti viðurkenningarnar við hátíðlega athöfn þann 27. október 2026. Viðurkenningarhöfum fjölgaði um 27,3% frá fyrra ári, sem sýnir framfarir í átt að auknu kynjajafnvægi í stjórnunarstöðum.

Markmið Jafnvægisvogarinnar er að stuðla að 40/60 kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum íslenskra fyrirtækja og stofnana. Þrátt fyrir framfarir eru konur enn aðeins 21,3% framkvæmdastjóra fyrirtækja á Íslandi. Þá voru karlar 71% þeirra sem ráðnir voru í framkvæmdastjórastöður árið 2025.

Yfirskrift viðurkenningarhátíðarinnar í ár var „Losum um hnútinn“ og vísar til mikilvægis þess að stjórnendur, stjórnir og eigendur taki virka afstöðu með jafnrétti og fylgi henni eftir með markvissum ákvörðunum.

Viðurkenningin staðfestir að sveitarfélagið uppfyllir viðmið Jafnvægisvogarinnar um kynjajafnvægi í framkvæmdastjórn.

Afhending á vðurkenningum