Sveitastjórarkosningar 2026
Kosningar til sveitarstjórnar Vesturbyggðar
Skrifað: 3. mars 2026
Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí nk. og er athygli vakin á eftirfarandi dagsetningum:
• Skilafrestur framboða er til kl. 12:00 – 10. apríl 2026.
• Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 17. apríl 2026.
Samhliða sveitarstjórnarkosningum fara fram kosningar til heimastjórna
Yfirkjörstjórn Vesturbyggðar hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar
Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.
Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu. Hér að neðan má finna sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.
Hægt er að mæla með framboðum hér
Yfirkjörstjórn:
Finnbjörn Bjarnason
Sigurvin Hreiðarsson
Edda Kristín Eiríksdóttir