Sveitastjórnarkosningar 2026
Athygli er vakin á eftirfarandi dagsetningum:
• Skilafrestur framboða er til kl. 12:00 þann 10. apríl 2026.
• Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 17. apríl 2026.
Samhliða sveitarstjórnarkosningum fara fram kosningar til heimastjórna.
Yfirkjörstjórn Vesturbyggðar hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is, sjá hlekk neðst í þessari frétt.
Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.
Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu. Hér að neðan má finna sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.
Hægt er að mæla með framboðum hér.
Yfirkjörstjórn:
Finnbjörn Bjarnason
Sigurvin Hreiðarsson
Edda Kristín Eiríksdóttir