Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Vesturbyggð auglýsir eftir drífandi einstaklingi til að taka að sér fjölbreytt starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Við leitum að aðila með áhuga og reynslu af stjórnun og teymisstarfi ásamt þekkingu á málaflokkum sviðsins. Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni til að skipuleggja og virkja samstarfsmenn til samráðs og samvinnu.
Sviðsstjóri er yfirmaður fjölskyldusviðs og ber ábyrgð á málaflokkum sviðsins, það er félagsþjónustu, fræðslumálum ásamt íþrótta- og tómstundamálum, og tryggir heildstæða þjónustu við fjölskyldur. Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins sem heyrir undir bæjarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg stjórnun fjölskyldusviðs
- Ábyrgð á fjárhagsáætlun, fjárreiðum og rekstri stofnana sviðsins
- Stuðningur og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks sviðsins
- Umsjón með starfsemi fjölskylduráðs og öldungaráðs
- Ábyrgð á heildstæðri þjónustu við fjölskyldur á sviði félags-, skóla-, íþrótta- og tómstundamála
- Ábyrgð á þátttöku Vesturbyggðar í svæðisbundnu samstarfi um barnavernd og málefni fatlaðs fólks
- Yfirsýn og samhæfing sérfræðiþjónustu þvert á málaflokka
- Frumkvæði að aðgerðum sem styrkja samfélagið
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
- Reynsla af stjórnun, rekstri, stefnumótun og mannauðsmálum
- Þekking á málaflokkum fjölskyldusviðs og opinberri stjórnsýslu er kostur
- Leiðtogahæfni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni
- Metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2026
Vesturbyggð er á sunnanverðum Vestfjörðum og samanstendur af þremur þéttbýliskjörnum, Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal og auk þess sveitir þar í kring. Svæðið einkennist af einstakri náttúrufegurð, öflugu atvinnulífi, fjölbreyttri þjónustu og góðu mannlífi. Í sveitarfélaginu er sterk innviða- og fjölskylduþjónusta, meðal annars leikskólar, íþróttastarf og öflugt æskulýðsstarf. Vesturbyggð býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar, félagslífs og afþreyingar og tekur vel á móti nýjum íbúum!
Sótt er um í gegnum heimasíðu Hagvangs. Umsóknum skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá, auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veita
- Geirlaug Jóhannsdóttir – geirlaug@hagvangur.is
- Stefanía Hildur Ásmundsdóttir – stefania@hagvangur.is