Hoppa yfir valmynd

Þetta reddast á bóka­safninu á Patreks­firði

Fimmtu­daginn 26. sept­ember kl. 20:00-21:30 verður fyrsta Þetta reddast kvöldið á bóka­safninu á Patreks­firði.


Skrifað: 23. september 2024

Kvöldin verða haldin mánaðarlega í vetur og er ætlað að vera vettvangur fyrir íbúa af erlendum uppruna til að koma saman. Þar verður hægt að leita upplýsinga, æfa sig í íslensku, spjalla við annað fólk sem hefur búið lengur á svæðinu, spila eða hvaðeina sem þátttakendum dettur í hug. Kvöldin eru auglýst í helstu stofnunum og fyrirtækjum á svæðinu á ensku og pólsku og íbúar eru einnig hvattir til að segja vinnufélögum og vinum af erlendum uppruna frá þessum viðburði.

 


Forstöðumaður bókasafna Vesturbyggðar

AH

bokpatro@vesturbyggd.is/+354 450 2374