Hoppa yfir valmynd

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla 2026

Kjör­staðir á kjördag 29. ágúst 2026


Skrifað: 17. ágúst 2026

Kjörstaðir í Vesturbyggð verða opnir sem hér segir:

Patreksfjörður – Kosið í safnaðarheimilinu að Aðalstræti 52. Frá klukkan 10:00 til klukkan 20:00.

Bíldudalur – Kosið í félagsheimilinu Baldurshaga. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00.

Krossholt – Kosið í Birkimelsskóla á Barðaströnd. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00.

Tálknafjörður – Kosið í Tálknafjarðarskóla. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00.

Íbúar fyrrum Rauðasandshrepps eru skráðir í kjördeildinni á Patreksfirði.

Lokun kjörstaða
Samkvæmt 91. gr. kosningarlaga nr. 112/2021 má ekki slíta kjörfundi fyrr en átta klukkustundir eru liðnar frá því að hann hófst og ekki fyrr en hálf klukkustund er liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi má þó slíta er allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram. Kjörfundi skal þó slíta eigi síðar en kl. 22 á kjördag. Þeir kjósendur sem hafa gefið sig fram fyrir þann tíma eiga þó rétt á að greiða atkvæði.

Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í ráðhúsi Vesturbyggðar á meðan á kosningu stendur.

Yfirkjörstjórn:

Thelma Dögg Theodórsdóttir

Sigurvin Hreiðarsson

Edda Eiríksdóttir