Þjónustufulltrúi á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum auglýsir laust til umsóknar starf þjónustufulltrúa á Patreksfirði.
Leitað er að þjónustulunduðum og nákvæmum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og hefur áhuga á fjölbreyttum þjónustuverkefnum.
Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Þjónustufulltrúi veitir upplýsingar og leiðbeiningar, tekur við erindum og afgreiðir staðlaðar þjónustubeiðnir samkvæmt gildandi heimildum og verklagi. Starfinu fylgja samskipti við þjónustuþega á starfsstöð, í síma og eftir stafrænum þjónustuleiðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veitir almennar upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu, umsóknir, fylgigögn, gjöld og ferli mála.
- Tekur við, skráir og flokkar erindi, gögn og greiðslur og beinir þeim í réttan farveg.
- Afgreiðir staðlaðar þjónustubeiðnir og annast afhendingu gagna, svo sem vegabréfa, ökuskírteina og vottorða, samkvæmt gildandi heimildum og verklagi.
- Veitir upplýsingar um stöðu og framgang mála eftir því sem heimildir leyfa og vísar erindum sem krefjast sérhæfðrar þekkingar eða efnislegs mats til viðkomandi fagsviðs eða fagteymis.
- Aðstoðar þjónustuþega við stafrænar umsóknir, rafræna auðkenningu og sjálfsafgreiðslulausnir.
- Bókar viðtöl og fjarfundi og aðstoðar þjónustuþega við að ná sambandi við rétt fagsvið, fagteymi eða samstarfsstofnun.
- Nýtir sameiginlegan þekkingargrunn og stuðlar að samræmdri og réttri upplýsingagjöf.
- Skráir þjónustusamskipti og ábendingar með samræmdum hætti og gætir trúnaðar og réttrar meðferðar gagna.
- Tekur þátt í sameiginlegum þjónustuvöktum og samstarfi þvert á teymi og starfsstöðvar eftir því sem við á.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starf
- Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta og færni til að miðla upplýsingum skýrt í ræðu og riti.
- Góð tölvufærni og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi og stafrænar þjónustuleiðir.
- Rík þjónustulund og hæfni til að greina þarfir þjónustuþega og beina erindum í réttan farveg.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og geta til að vinna í teymi.
- Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni til að forgangsraða verkefnum og veita góða þjónustu undir álagi.
- Hreint sakavottorð.
- Reynsla af þjónustustörfum, skráningu erinda eða sambærilegum verkefnum er kostur.
Umsóknir
Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.
Við mat á umsóknum verður horft til menntunar, reynslu og hæfni umsækjenda með hliðsjón af verkefnum starfsins og þörfum embættisins. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Starfshlutfall er 100%
Með umsókn skulu fylgja:
- Starfsferilskrá.
- Stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni til að gegna starfinu.
- Upplýsingar um meðmælendur.
- Afrit af prófskírteinum eftir því sem við á.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2026
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Starfsstöð er á Patreksfirði. Fram til ársloka 2026 tilheyrir starfið embætti Sýslumannsins á Vestfjörðum. Frá og með 1. janúar 2027 verður starfið hjá nýju embætti Sýslumanns, sem tekur þá við verkefnum núverandi sýslumannsembætta.
Í nýju embætti verður lögð áhersla á samræmda þjónustu um land allt og samstarf þvert á starfsstöðvar. Þjónustufulltrúi getur því sinnt erindum óháð búsetu þjónustuþega og tekið þátt í sameiginlegum þjónustuvöktum framlínu og þjónustuvers.
Nánari upplýsingar um starfsemi sýslumanna má finna á vef sýslumanna.
Nánari upplýsingar veitir
Gabríela Aðalbjörnsdóttir, skrifstofustjóri
Tölvupóstur: gabriela.adalbjornsdottir@syslumenn.is
Sími: 4582400