Hoppa yfir valmynd

Þyrla á sveimi vegna ofan­flóða­varna

Eflaust hafa einhverjir bæjar­búar á Patreks­firði velt því fyrir sér hvers vegna þyrla var sveim­andi yfir bæjar­mörk­unum í dag.


Skrifað: 26. júní 2024

Þyrlan er að vinna í ofanflóðavörnum í Stekkagili. Verið er að undirbúa uppsetningu stoðvirkja efst í gilið. Tilgangur stoðvirkjanna er að hindra að snjór fari af stað efst í gilbarminum.

Stoðvirkin sjálf verða sett upp í ágúst en í þessari framkvæmd er unnið að því að steypa niður festingar og undirstöður. Einnig er unnið í því verkefni að hreinsa laus grjót af framkvæmdasvæði efst í Stekkagili og því mikilvægt að fólk fari ekki upp í gilið næstu vikur.


Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs

geir@vesturbyggd.is/+354 450 2300