Hoppa yfir valmynd

Tilkynning vegna báta og lausa­fjár­muna

Eigendur báta eru minntir á að bátum sem teknir eru á land er ætlað að vera komið fyrir á báta­upp­sát­urs­svæðum en ekki til lang­tíma­geymslu við hús, á einka­lóðum, iðnað­ar­lóðum eða öðrum svæðum innan þétt­býlis.


Skrifað: 7. september 2026

Samkvæmt 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 mega bátar ekki standa lengur en tvo mánuði utan svæða sem sérstaklega eru skipulögð og ætluð til geymslu þeirra nema tilskilin heimild liggi fyrir.

Bátauppsáturssvæði eru til staðar á:

  • Bíldudal
  • Patreksfirði
  • Tálknafirði

Eigendur eru því hvattir til að nýta þessi svæði þegar bátar eru teknir á land.

Jafnframt er fólk hvatt til að skilja ekki eftir hjólhýsi, ferðavagna eða annan sambærilegan búnað til langtímageymslu innan bæjarlandsins. Sérstök ákvæði byggingarreglugerðar gilda um geymslu hjólhýsa utan skilgreindra geymslusvæða.

Sveitarfélagið hvetur eigendur til að ganga vel frá lausafjármunum og koma þeim fyrir á svæðum sem ætluð eru til slíkrar geymslu.