Hoppa yfir valmynd

Tillaga að breyt­ingu á starfs­leyfi — Arctic Sea Farm

Umhverfis- og orku­stofnun auglýsir tillögu að breyt­ingu á starfs­leyfi Arctic Sea Farm ehf. í Arnar­firði.


Skrifað: 13. október 2025

Rekstraraðili hefur starfsleyfi í gildi fyrir kynslóðaskiptu eldi á tveimur svæðum í Arnarfirði, eldissvæði í Lækjarbót og eldissvæði í Hvestudal, með að hámarki 4.000 tonna lífmassa á hverjum tíma. Í breytingunni felst að heimila rekstraraðila eldi á eldissvæði í Trostansfirði. Breytingin felur ekki í sér aukið umfang.

Að auki hefur stofnunin óskað eftir breytingu á vöktunaráætlun rekstraraðila að því leyti að hún taki einnig til vöktunar á og við eldissvæðið í Trostansfirði.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun á uos@uos.is, merktar UOS2505057.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 10. nóvember 2025.

Nánari upplýsingar og tengd skjöl má nálgast á heimasíðu Umhverfis- og orkustofnunar.