Tilnefningar til bæjarlistamanns 2026
Óskað er eftir tilnefningum til bæjarlistamanns Vesturbyggðar árið 2026. Frestur til að senda inn tillögu er til og með 1. maí næstkomandi.
Viðurkenningin verður afhent á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Henni er ætlað að koma verkum bæjarlistamannsins á framfæri og upphefja hans góðu störf í þágu listarinnar í bæjarfélaginu. Hún var fyrst veitt Rannveigu Haraldsdóttur árið 2021, síðan Signýju Sverrisdóttur árið 2022, Guðnýju Gígju Skjaldardóttur árið 2023, Birtu Ósmann Þórhallsdóttur árið 2024 og síðast Gísla Ægi Ágústssyni árið 2025.
Öll geta sent inn tilnefningar og tilnefna má listamenn úr öllum listgreinum, til dæmis hannyrðum, myndlist, útskurði, ritlist, leiklist, tónlist eða öðru. Gott og gagnlegt er fyrir valnefnd að rökstuðningur og nánari upplýsingar um listamanninn fylgi tilnefningu en ekki er gerð krafa um slíkt.
Sérstök valnefnd mun velja hver hlýtur viðurkenninguna. Hún mun hafa innsendar tillögur til hliðsjónar við valið en er heimilt að veita viðurkenninguna listamanni sem var ekki tilnefndur.
Tilnefningar og ábendingar berist í tölvupósti til menningarfulltrúa á netfangið muggsstofa@vesturbyggd.is. Frestur til að senda inn tillögu er til og með 1. maí 2026.