Tímabundin lokun á Bjarkargötu
Vegna framkvæmda við byggingu á nýju húsi við Bjarkargötu 10 á Patreksfirði verður götunni meðfram Rauðakrosshúsinu lokað frá og með 24. júní til 1. ágúst.
Hægt er að komast frá Bjarkargötu yfir á Þórsgötu á hjáleið merktri með grænu á korti. Vegfarendur eru beðnir um að sýna verktökum tillitssemi og virða lokun.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem skapast geta vegna þessara framkvæmda.
