Tjaldsvæðið á Bíldudal 2025
Nýr Bíldudalsskóli rís nú á því svæði sem tjaldsvæði Bíldudals hefur verið á. Því tekur skipulag tjaldsvæðisins á Bíldudal þónokkrum breytingum og verður á tveimur stöðum, annars vegar á minna svæði við Byltu og hins vegar á túninu við Skrímslasetrið.
Tjaldsvæðið við Skrímslasetrið
Tjaldsvæðið er staðsett í hjarta bæjarins og er við hliðina á Skrímslasetrinu, Strandgötu 7, en einnig steinsnar frá Bíldudalskirkju og Vegamótum. Vesturbyggð sér um rekstur tjaldsvæðisins. Tjaldsvæðið opnar kvöldið 13. júní.
Á svæðinu eru rafmagnsstaurar. Keyrt er inn á svæðið að frá Strandgötu, það er þeim megin sem Rækjuverið er. Gestir tjaldsvæðisins geta einnig lagt við rækjuverið og eru hvattir til að geyma bíla sína þar eftir að hafa komið hýsum sýnum fyrir á tjaldsvæðinu vegna takmarkaðs pláss, sjá mynd hér að neðan.
Á svæðinu er salernisgámur fyrir gesti og athygli er vakin á því að salerni Skrímslasetursins er einungis fyrir viðskiptavini þess, á það einnig við um fremstu bílastæðin við Skrímslasetrið og pallinn. Þá eru gestir beðnir um að sýna því skilning að hávaði getur borist frá Skrímslasetrinu þegar viðburðir eru í gangi. Tjaldsvæðagestir geta nýtt sér sturtuaðstöðu í íþróttamiðstöðinni Byltu að Hafnarbraut 15 gegn framvísun kvittunar fyrir greiðslu á tjaldsvæðinu.

Tjaldsvæðið við Byltu
Sem áður geta gestir gist á tjaldsvæðinu við íþróttamiðstöðina Byltu en svæðið er minna en áður vegna byggingar nýs Bíldudalsskóla. Tjaldsvæðið hefur þegar verið opnað. Vakin er athygli á mögulegri hávaðatruflun vegna framkvæmda. Gestir tjaldsvæðisins eru hvattir til að leggja hýsum sýnum á tjaldsvæði en geyma bíla á bílastæði.
Rafmagnsstaurar hafa verið færðir við Skrímslasetrið svo ekki er hægt að komast í rafmagn. Á svæðinu er salernisgámur og líkt og áður geta gestir tjaldsvæðisins nýtt sér sturtuaðstöðu íþróttamiðstöðvarinnar gegn framvísun kvittunar. Kort af svæðinu má sjá hér að neðan.

Annað
Á Bíldudals grænum baunum og um verslunarmannahelgina verður einnig hægt að tjalda á Völuvelli. Nánari upplýsingar um það fyrirkomulag verða birtar síðar.
Vinsamlegast athugið að ekki verður tekið við Útilegukortinu á tjaldsvæðinu á Bíldudal sumarið 2025. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar breytingar kunna að valda og þökkum skilninginn.