Hoppa yfir valmynd

Tölum saman um líðan og tengsl — Barna­heill og Geðhjálp á Patreks­firði

Barna­heill og Geðhjálp hafa tekið höndum saman og ferðast nú um Vest­ur­land og Vest­firði frá 7.–11. sept­ember með viðkomu á Grund­ar­firði, Hólmavík, Ísafirði og Patreks­firði. Félögin efna til fundar við ungmenni um allt land til að ræða líðan og veru­leika ungs fólks á hverjum stað.


Skrifað: 9. september 2026

Á fimmtudagsmorgun er nemendum í efstu bekkjum grunnskólanna í Vesturbyggð boðið í vinnustofu þar sem áhersla er lögð á líðan, samskipti (heilbrigð og óheilbrigð) og jákvæða þætti sem mætti styrkja innan hvers samfélags.

Unnið verður úr skilaboðum ungmennanna samdægurs og þau rædd með forsjáraðilum og forráðafólki sveitarfélaganna á opnum íbúafundi í Patreksskóla fimmtudagskvöldið 10. september. Þar  verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili.

Á þennan fund eru öll velkomin en þó er  ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti. Forsjáraðilar, sveitarstjórnarfólk, starfsfólk í skóla- og frístundamálum, heilbrigðis- og velferðarþjónustu svæðisins og lögregla eru sérstaklega hvött til að mæta og taka þátt í samtalinu. Dagskráin á hverjum stað endar svo á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel.

Patreksskóli 10. september kl. 19:30 — dagskrá

  • Geðhjálp/Barnaheill opna fundinn og fara yfir dagskrána
  • Hópstórar og/eða nemendur kynna niðurstöður hvers hóps
  • Samtal um niðurstöður
  • Jákvæð skilaboð fundarins – hvað er gott og hvað er hægt að bæta?
  • Ljúfir tónar frá Unnsteini Manuel
  • Fundi lýkur