Tómstundafulltrúi
Vesturbyggð óskar eftir að ráða tómstundafulltrúa. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi til að halda uppi góðu og faglegu starfi í tómstundamálum fyrir alla aldurshópa.
Tómstundafulltrúi er einn af stjórnendum fjölskyldusviðs. Starfshlutfall er 100% og næsti yfirmaður er sviðsstjóri fjölskyldusviðs.
Meginverkefni
- Umsjón með verkefnum er varða íþrótta- og tómstundastarf og eflingu lýðheilsu og forvarna.
- Vinnur að framkvæmd sveitarfélagsins á sviði íþrótta og tómstunda og hefur frumkvæði að samskiptum og aðgerðum til að styrkja þann málaflokk.
- Hefur yfirumsjón með starfsemi íþróttaskóla, félagsmiðstöðva og vinnuskóla sveitarfélagsins.
- Umsjón með akstri tengdum skólastarfi, íþróttum og tómstundum.
- Hefur umsjón með íþróttavöllum í sveitarfélaginu.
- Starfar með ungmennaráði sveitarfélagsins.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi skilyrði, svo sem á sviði kennslu eða uppeldisfræða, íþrótta og heilsufræða, tómstunda- og félagsmálafræða eða annað sambærilegt nám.
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
- Reynsla og þekking á þjálfun kostur.
- Íslenskukunnátta í ræðu og riti skilyrði.
- Enskukunnátta æskileg.
- Rík krafa um frumkvæði og framkvæmdagleði.
- Sjálfstæði í störfum og góð skipulagshæfni.
- Rík og góð samskiptahæfni og þjónustulund við alla aldurshópa.
- Jákvæðni og aðlögunarhæfni
Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí 2025
Laun eru samkvæmt samningum sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús Arnar Sveinbjörnsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 450 2300 eða magnusarnar@vesturbyggd.is
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, starfsferil og fleira skal senda netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt: Umsókn – tómstundafulltrúi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu í starfið. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.