Hoppa yfir valmynd

Tómstunda­full­trúi

Vest­ur­byggð leitar að metn­að­ar­fullum, skap­andi og ábyrgum einstak­lingi til að taka að sér lykil­stöðu í tómstunda- og félags­lífi sveit­ar­fé­lagsins.


Skrifað: 28. janúar 2026

Starfið felur í sér tækifæri til að byggja upp og efla fjölbreytt tómstundastarf fyrir alla aldurshópa. Tómstundafulltrúi er einn af stjórnendum fjölskyldusviðs og er leiðandi í lýðheilsu-, forvarna- og félagsmálaumgjörð sveitarfélagsins. Starfshlutfall er 100% og næsti yfirmaður er sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með verkefnum er varða íþrótta- og tómstundastarf, eflingu lýðheilsu og forvarna hjá sveitarfélaginu
  • Yfirumsjón með starfsemi íþróttaskóla, félagsmiðstöðva og vinnuskóla sveitarfélagsins
  • Vera einn af lykilaðilum við innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
  • Þátttaka í ákvarðanatöku sem snýr að uppbyggingu á sviði íþrótta- og tómstundamála í sveitarfélaginu
  • Umsjón með akstri tengdum skólastarfi, íþróttum og tómstundum
  • Umsjón með íþróttavöllum í sveitarfélaginu
  • Samstarf með ungmennaráði sveitarfélagsins
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi skilyrði, svo sem á sviði kennslu eða uppeldisfræða, íþrótta og heilsufræða, tómstunda- og félagsmálafræða eða annað sambærilegt nám
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Reynsla og þekking á þjálfun kostur
  • Íslenskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
  • Enskukunnátta æskileg
  • Rík krafa um frumkvæði og framkvæmdagleði
  • Sjálfstæði í störfum og góð skipulagshæfni
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund við alla aldurshópa
  • Jákvæðni og aðlögunarhæfni

Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2026

Sótt er um í gegnum heimasíðu Hagvangs, sjá hlekk hér fyrir neðan.

Nánari upplýsingar veitir Stefanía Hildur Ásmundsdóttir á netfangið stefania@hagvangur.is.