Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Umsjón með fram­halds­deild FSN

Fjöl­braut­ar­skóli Snæfell­inga auglýsir stöðu umsjón­ar­aðila við fram­halds­deild á Patreks­firði lausa til umsóknar.


Skrifað: 3. september 2025

Umsjónaraðili á Patreksfirði er nemendum til aðstoðar og stuðnings. Umsjónaraðilinn hefur umsjón með nemendum, aðstoðar þá í náminu og í samskiptum við kennara ef á þarf að halda.

Starfið felst m.a. í umsjón með daglegri starfsemi deildarinnar og aðstoð við nemendur, en þeir stunda dreifnám frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Viðkomandi fylgir nemendum í námsferðir til Grundarfjarðar, ef þörf er á.

Hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfileika og er lipur í samskiptum.  Einnig er mikilvægt að viðkomandi sé fljótur að tileinka sér nýjungar og sé vel tölvufær. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi góða íslenskukunnáttu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • er nemendum á Patreksfirði til aðstoðar og stuðnings,
  • hefur umsjón með nemendum, aðstoðar þá í náminu og í samskiptum við kennara ef á þarf að halda,
  • er í samstarfi við aðra starfsmenn, nemendur, foreldra og forráðamenn, hefur viðtalstíma fyrir nemendur sína og forráðamenn þeirra.
  • hefur viðtalstíma fyrir nemendur sína og forráðamenn þeirra.
  • aðstoða nemendur við athafnir í daglegu lífi á skólatíma,
  • aðstoða kennara eða þroskaþjálfa í kennslustundum,
  • vinna að sértækum verkefnum með nemendum undir stjórn kennara eða þroskaþjálfa.
  • skipuleggur og undirbýr nemendaferðir til Grundarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2025

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Ráðið er í stöðuna frá 22. september 2025. Nánari upplýsingar veita Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, skólameistari,  í síma 430 8400 og á hrafnhildur@fsn.is

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist skólameistara, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði eða á netfangið hrafnhildur@fsn.is síðasta lagi 12. september 2025. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 50%.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, skólameistari.