Undanþága frá sorpgjöldum fyrir lífræna tunnu
Fasteignaeigendur sem stunda heimajarðgerð lífúrgangs geta sótt um undanþágu frá greiðslu á tunnugjöldum. Sæka þarf um undanþágu fyrir hvert álanginarár.
Samkvæmt gildandi verklagsreglum um lífúrgang er fasteignaeigendum heimilt að stunda heimajarðgerð í stað þess að nýta tunnu fyrir lífúrgang, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Undanþágan gildir aðeins fyrir það ár sem umsóknin nær til. Þeir sem sóttu um heimajarðgerð á síðasta ári og fengu gjald fellt niður þurfa því að sækja um að nýju.
Með umsókn skal fylgja lýsing á aðstöðu til heimajarðgerðar og skuldbinding um að farið sé að reglum um meðhöndlun lífúrgangs. Jafnframt felst í umsókninni samþykki fyrir því að aðstaðan geti verið sannreynd af hálfu sveitarfélagsins. Tekið er á móti umsóknum á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is eða í bréfpósti til skrifstofu Vesturbyggðar á Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði.
Fasteignaeigendur sem uppfylla skilyrðin og hafa gildar umsóknir geta fengið gjald vegna lífúrgangstunnu fellt niður fyrir viðkomandi ár.