Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir næstum 4 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Ungmennaráð Vesturbyggðar
Vesturbyggð auglýsir eftir áhugasömum og kraftmiklum ungmennum á aldrinum 13-25 ára til að bjóða sig fram og starfa í Ungmennaráði Vesturbyggðar. Ungmennaráð er ráðgefandi um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu.
Markmið ráðsins er meðal annars:
- Að skapa vettvang til að gera ungu fólki kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila
 - Að vera bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni ungs fólks og gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnumörkun um málefni ungs fólks
 - Að veita fulltrúum í ráðunum, fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum
 
Eftir að auglýsing lýkur, verður kosið til fulltrúa á ungmennaþingi á lýðræðislegum vettvangi.
- Kynjahlutföll séu sem jöfnust
 - Tveir fulltrúar frá Grunnskóla Vesturbyggðar
 - Þrír fulltrúar á aldrinum 16-25 ára, þar af að minnsta kosti einn frá FSN
 - Fulltrúi sitji eigi lengur en tvö ár í ráðinu
 
Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá íþrótta-og tómstundafulltrúa Vesturbyggðar.