Uppbyggingarsjóður Vestfjarða — Opin vinnustofa
Umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða er til kl. 14:00 miðvikudaginn 21. október 2026. Opin vinnustofa vegna styrkumsókna til menningarmála, nýsköpunar og atvinnuþróunar verður haldin í Ólafshúsi á Patreksfirði miðvikudaginn 7. október kl. 16:00-18:00.
Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja verkefni sem falla að Sóknaráætlun Vestfjarða. Styrkirnir eru tvennskonar; verkefnastyrkir til atvinnuþróunar, nýsköpunar og á sviði menningar ásamt stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningar. Vestfjarðastofa annast umsýslu sjóðsins í landshlutanum fyrir hönd Fjórðungssambands Vestfirðinga og er auglýst einu sinni á ári eftir umsóknum um styrki.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Vestfjarðastofu.