Uppfært leikskóladagatal samþykkt
Fjölskylduráð hefur samþykkt nýtt og uppfært leikskóladagatal leikskóla sveitarfélagsins. Helsta breytingin snýr að sumarlokun leikskólanna.
Skrifað: 8. október 2026
Samkvæmt uppfærðu dagatali verður sumarlokun frá 14. júlí til og með 12. ágúst. Miðvikudagurinn 12. ágúst verður starfsdagur og leikskólastarf hefst að nýju fimmtudaginn 13. ágúst.