Hoppa yfir valmynd

Utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga hefst 17. apríl

Utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum þann 16.maí hefst hjá sýslu­mönnum um allt land föstu­daginn 17.apríl


Skrifað: 16. apríl 2026

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í sveitarstjórnarkosningum þann 16.maí hefst hjá sýslumönnum um allt land föstudaginn 17.apríl og fer fram á skrifstofum sýslumanna um allt land fram til föstudagsins 15.maí en kjördagur til sveitarstjórna er laugardaginn 16.maí. Atkvæði í sveitarstjórnarkosningum þarf að senda til Vesturbyggðar ef kosið er annars staðar en á Vestfjörðum. Hjá sýslumanni Vestfjarða á Ísafirði og Hólmavík má skilja atkvæðið eftir á skrifstofum þeirra og því verður komið til Patreksfjarðar fyrir kjördag.

Í Vesturbyggð er einnig kosið til heimastjórna og mun utankjörfundaratkvæðagreiðsla til heimastjórna hefjast föstudaginn 24.apríl. Framkvæmd hennar verður auglýst nánar eftir helgi en hægt verður að greiða atkvæði í ráðhúsi Vesturbyggðar Aðalstræti 75 á Patreksfirði á opnunartíma skrifstofu frá og með 24.apríl.