Hoppa yfir valmynd

Vel heppnað minni­boltamót á Patreks­firði

Minni­boltamót Vest­fjarða fór fram í íþrótta­húsinu Bröttu­hlíð á Patreks­firði sunnu­daginn 1. nóvember. Alls tóku 35 börn í sjö liðum þátt í mótinu.


Skrifað: 4. nóvember 2026

Íþróttafélagið HHF tók á móti Vestra frá Ísafirði og var keppt í tveimur aldursflokkum, 1.–2. bekk og 3.–4. bekk.

Mótið gekk vel og var góð stemning meðal þátttakenda. Markmiðið var að gefa börnunum tækifæri til að spila körfubolta og hitta jafnaldra frá öðrum stöðum á Vestfjörðum.

Næsta minniboltamót er fyrirhugað á Ísafirði laugardaginn 3. apríl.