Vel heppnaður samverudagur skólanna
Í dag komu nemendur frá Bíldudalsskóla, Patreksskóla og Tálknafjarðarskóla, ásamt börnum af leikskóladeildinni Klif, saman á Bíldudal í skemmtilega og fjölbreytta samveru.
Dagskrá dagsins var viðburðarík. Nemendur fengu að skoða nýtt skólahúsnæði Bíldudalsskóla, taka þátt í ratleik um þorpið og njóta leikja og hreyfingar í íþróttahúsinu. Einnig var farið í heimsókn á Skrímslasafnið og á leikskólann Tjarnarbrekku.
Veðrið var með besta móti og skapaði góðar aðstæður fyrir útivist og samveru. Dagurinn tókst afar vel og var ánægjulegt að sjá nemendur og starfsfólk skólanna njóta dagsins saman.
