Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Verk­efna­stjóri ræst­inga

Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða leitar að jákvæðum og sjálf­stæðum einstak­ling til starfa við ræst­ingar á heilsu­gæsl­unni á Patreks­firði.
Um er að ræða dagvinnu og er starfs­hlut­fall  60 – 80% eða eftir samkomu­lagi.


Skrifað: 21. febrúar 2023

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnastjóri ræstinga stýrir starfsemi í ræstingum og ber ábyrgð á framkvæmd og skipulagi í samráði við rekstrarstjóra. Verkefnastjóri hefur einnig yfirumsjón með sótthreinsun.

Hæfniskröfur

  • Áreiðanleiki, samviskusemi og sjálfstæði í starfi
  • Reglusemi og stundvísi
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslensku og/eða enskukunnátta.
  • Góð almenn tölvufærni
  • Gild ökuréttindi
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur

Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2023

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá. Æskilegt væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, legudeild, endurhæfingu og rekstrardeild. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 60-80%

Nánari upplýsingar veitir

Hermann Grétar Jónsson, Rekstrarstjóri – hermann@hvest.is – 782 0880
Gerður Rán Freysdóttir, Hjúkrunarstjóri – gerdur@hvest.is – 450 2000

Smelltu hér til að sækja um starfið