Hoppa yfir valmynd

Verk­efn­is­stjórn Brot­hættra byggða í Tálkna­firði

Vest­ur­byggð auglýsir eftir áhuga­sömum íbúum á Tálkna­firði til að starfa í verk­efn­is­stjórn verk­efn­isins Brot­hættar byggðir.


Skrifað: 5. maí 2026

Verkefnið er hluti af flokki byggðaþróunarverkefna sem kölluð eru Brothættar byggðir (Bb), það eru verkefni sem Byggðastofnun hefur leitt víða um land ásamt samstarfsaðilum sem eru sveitarfélög og landshlutasamtök ásamt íbúum í viðkomandi byggðarlagi. Finna má lýsingu á verkefninu á vef Byggðastofnunar.

Verkefnisstjórn er skipuð til að veita verkefnisstjóra stuðning og ráðgjöf í framkvæmd verkefnisins. Helstu verkefni til að byrja með eru að skipuleggja íbúaþing, móta verkefnisáætlun og síðar úthluta fjármunum til frumkvæðisverkefna. Verkefnisstjórn er skipuð eftirtöldum aðilum:

  • Fulltrúa Vesturbyggðar
  • Tveimur fulltrúum íbúa á Tálknafirði
  • Fulltrúa Vestfjarðastofu
  • Tveimur fulltrúum Byggðastofnunar

Gert er ráð fyrir að verkefnisstjórn fundi að jafnaði sex sinnum á ári þegar verkefnið er komið vel af stað og þá gjarnan í fjarfundi. Reynslan sýnir á hinn bóginn að fundirnir fyrsta árið verða í flestum byggðarlögum mun fleiri vegna undirbúnings og mótunar verkefnisáætlunar. Fulltrúar fá greidd nefndarlaun. Heimastjórn Tálknafjarðar mun skipa fulltrúa íbúa í verkefnisstjórnina.

Áhugasöm eru beðin um að senda tölvupóst á vesturbyggd@vesturbyggd.is.