Hoppa yfir valmynd

Verum viðbúin — nýr upplýs­inga­bæklingur

Almanna­varna­deild ríkis­lög­reglu­stjóra hefur gefið út upplýs­inga­bæklinginn Verum viðbúin sem ætlað er að efla viðbúnað almenn­ings fyrir óvæntar aðstæður. Bækling­urinn er aðgengi­legur á rafrænu formi og hefur einnig verið gefinn út á prenti.


Skrifað: 9. nóvember 2026

Í bæklingnum er að finna hagnýtar leiðbeiningar um hvernig fólk getur undirbúið sig fyrir aðstæður þar sem daglegt líf raskast, til dæmis vegna náttúruhamfara eða annarra óvæntra atburða. Einnig er fjallað um hvar hægt er að nálgast áreiðanlegar upplýsingar þegar slíkar aðstæður koma upp.

Bæklingurinn hefur verið sendur rafrænt til allra íbúa landsins 18 ára og eldri í gegnum Ísland.is.

Bæklingurinn og frekari upplýsingar eru aðgengileg á vefnum Verum viðbúin. Efnið er fáanlegt á íslensku, ensku og pólsku auk þess sem það er aðgengilegt á íslensku táknmáli og á auðlesnu máli. Einnig er von á hljóðútgáfu bæklingsins.