Viðhorfskönnun meðal íbúa Tálknafjarðar og nærsveita
Íbúum Tálknafjarðar og nærsveita gefst nú kostur á að taka þátt í viðhorfskönnun um búsetu og samfélagið við Tálknafjörð. Könnunin er hluti af upphafi þátttöku Tálknafjarðar í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir, sem Byggðastofnun er í forsvari fyrir á landsvísu.
Skrifað: 14. ágúst 2026
Markmið könnunarinnar er að varpa ljósi á stöðu byggðarlagsins og viðhorf íbúa í upphafi verkefnisins. Sambærileg könnun verður lögð fyrir að nýju við lok verkefnisins, eftir um fimm ár, og niðurstöðurnar nýttar til að meta þróun og árangur verkefnisins, bæði á Tálknafirði og innan Brothættra byggða í heild.
Mikilvægt er að sem flestir íbúar taki þátt svo niðurstöðurnar gefi sem skýrasta mynd af viðhorfum og stöðu samfélagsins. Ekki er hægt að rekja einstök svör til einstaklinga.
Könnunin verður opin til 11. september og hægt er að taka þátt með því að smella á eftirfarandi tengil:
Viðhorfskönnun meðal íbúa Tálknafjarðar og nærsveita
Með Tálknafirði og nærsveitum er í könnuninni átt við samfélagið við Tálknafjörð, það er þorpið og sveitabýlin við fjörðinn.