Hoppa yfir valmynd

Vígsla höggl­ista­verks á höfn­inni

Hátíðleg vígsla lista­verks eftir Henri Patrick Stein á höfn­inni á Patreks­firði fer fram á sjómannadaginn, þann 1. júní, eftir sjómannadags­messu og skrúð­göngu. Verkið er tileinkað íslenskum sjómönnum og saman­stendur af tveimur steinum, þar sem á öðrum er andlits­mynd íslensks sjómanns sem horfir út á hafið og á hinum er stafn árabáts, sem kemur út úr berginu.


Skrifað: 30. maí 2025

Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, mun segja nokkur orð en María Óskarsdóttir og Halldór Árnason, hvata- og umsjónarmenn verkefnisins, munu vígja högglistaverkið. Þau hafa lengi vel staðið að sýningu í tengslum við franska sjómenn á heimili þeirra að Mýrum 8 á Patreksfirði og gefið út bækur um efnið.

Henri Patrick Stein er franskur högglistamaður sem hannaði og mótaði minnisvarðann til heiðurs bretónskum sjómönnum á Patreksfirði árið 2002. Hann ákvað að koma aftur tveimur áratugum seinna og höggva ný listaverk í steina við flotbryggjuna og sýna þannig Íslendingum virðingarvott í verki, fyrir þolinmæði landsmanna í gegnum aldirnar vegna yfirgangs erlendra þjóða á miðunum við landið.

Auk Maríu og Halldórs fékk Stein aðstoð frá Kristni H. Marinóssyni, Sigurjóni Einarssyni, Önnu Guðnýju Jónsdóttur, Páli Haukssyni, Gísla ásgeirssyni og Camille Salmon.

Öll eru hjartanlega velkomin að vera viðstödd.