Hoppa yfir valmynd

Vígslu­hátíð Bíldu­dals­skóla

Öll eru hjart­an­lega velkomin að vera viðstödd vígslu Bíldu­dals­skóla að Hafn­ar­braut 5, fimmtu­daginn 14. maí kl. 13:00.


Skrifað: 8. maí 2026

Um er að ræða nýjan og glæsilegan skóla sem mun hýsa bæði leik- og grunnskólastarf á Bíldudal. Skólinn er hannaður af Arkibygg og markar tímamót í skólastarfi sveitarfélagsins.

Dagskráin hefst með opnu húsi þar sem gestum gefst kostur á að skoða skólann undir leiðsögn starfsfólks. Að því loknu tekur við formleg dagskrá með ávörpum, tónlistaratriðum og formlegri vígslu. Boðið verður upp á léttar veitingar.