Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 6 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Vinnuvélanámskeið í lok ágúst
Vinnueftirlitið í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða, stendur fyrir námskeiði í stjórnun minni vinnuvéla.
Frumnámskeið á íslensku á Patreksfirði dagana 29., 30. og 31. ágúst 2018.
Frumnámskeið á Pólsku á Patreksfirði dagana 10., 11. og 12. september 2018.
Kennt er frá 09:00 til 12:00 og 13:00 til 16:00 alla dagana en í lok síðasta dags er bóklegt próf.
Námskeiðið veitir bókleg réttindi á:
- Lyftara með 10 tonna lyftigetu og minni – J flokkur
- Dráttarvélar með tækjabúnaði og minni gerðir jarðvinnuvéla (4t og undir) – I flokkur
- Körfukrana og steypudælur – D flokkur
- Valtara – L flokkur
- Útlagningarvélar fyrir bundið slitlag – M flokkur
- Hleðslukrana á ökutækjum með allt að 18 tm lyftigetu – P flokkur
Námskeiðið kostar 47.000 skráning er á heimasíðu Vinnueftirlitsins hér.
Nánari upplýsingar og spurningar í síma 550 4600 eða netfanginu vinnueftirlit@ver.is