Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.
Yfirferð slökkvitækja
Öryggismiðstöðin mætir með starfsemi sína á Patreksfjörð og tekur á móti slökkvitækjum í hleðslu og yfirferð. Fyrirtækið verður einnig með slökkvitæki og annan eldvarnarbúnað til sölu á Patreksfirði.
Tekið verður á móti slökkvitækjum frá mánudegi til fimmtudags dagana 29. ágúst – 1. september.
Vinsamlegast merkið tækin með fullu nafni og kennitölu. Tækjunum verður skilað 1-2 dögum síðar.
Staðsetningar móttöku slökkvitæka:
- Patreksfjörður – Slökkvistöðin á Patreksfirði
- Tálknafjörður – Verslunin Hjá Jóhönnu ehf.
- Bíldudalur – Vegamót
- Barðaströnd – Dreifbýli – vinsamlegast hafið samband
Nánari upplýsingar veita:
Þorgils Ólafur, sími: 820 2413
Jón Hjörtur, sími: 780 5840